Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, janúar 08, 2004

Ojbara, nýja náttúrufræðihúsið er ógeð. Sem betur fer er ég að klára, gæti ekki hugsað mér að vera innan í þessu ofurvaxna geimskipi mikið lengur en 3 mánuði. Svo er þetta ekki einu sinni tilbúið, hvað á það að þýða að byrja að kenna af einhverri hörku í húsi sem er rétt hálfnað...tsssss.

Horið fer ögn minnkandi, og verð ég vonandi orðin hress áður en ég veit af. Fór í bíó í gær með Ásdísi, sáum Emperor´s club, fær ekki nema 2 stjörnur....ágætis afþreying, en ekkert meira en það.
Var vakin áðan með símtali frá Strasbourg, eða Kópaskeri eins og margir kalla þá borg. Ekkert smá gaman að heyra loksins í Kötlu sinni. Hún er víst að breytast í Frakka, komin með alpahúfu, hljólandi um með baquette í körfu, synjandi allé le bleu...allé le bleu...:) Áfram Kalta!!