Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, janúar 14, 2004

Í dag var ég vinsælasta konan í umferðinni! Minn heittelskaði bíll, tók uppá því að deyja á ljósum einum við bústaðarveg. Skelfilegt!!!!! Þarna mátti ég dúsa, tafði alla umferð og lét margan ökumanninn skipta skapi. Sumir eru svo kurteisir að flauta á mig, þar sem ég fór ekki af stað þegar græna ljósið kom....og sá kurteisasti hann gaf mér fingur. Kannski var eitthvað að honum, hann hefur ætla að gefa mér svona 'you go girl' putta en gaf mér löngutöng í staðinn sem þýðir allt allt annað.
En þetta var frekar vandræðalegt móment, svona í 5 umferðinni.
Vona bara að skrjóðurinn lifni við hið snarasta, því ég þarf að komast leiða minna.......