Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, desember 31, 2003

Jæja síðasti dagur ársins, fær mann til að rifja upp árið. Fullt af minningum, góðum og slæmum. Tæland eins og það leggur sig trjónir á toppnum þetta árið. Þar kynntist ég einmitt Kötlu, sem bjargaði mér í Tælandi hvað eftir annað, ómetanleg kona. Útfrá henni hef ég svo kynnst nokkrum eðal konum og mönnum. Nefni ég fyrst snillinginn og aðra ómetanlega konu, Ásdísi, og svo allt seyðófólkið eins og það leggur sig. Alltaf gaman að eignast góða vini á gamalsaldri.
Mörg góð djömm voru tekin á árinu sem er að líða, og má nefna eyjar, seyðó og alla hina vitleysuna sem maður hefur verið að gera.
Endurheimt ársins var að fá hana Þurý mína heim í nokkra mánuði. Höfum átt virkilega góðar stundir.
Fjárfesting ársins eru náttúrulega kaupin á minni fyrstu íbúð, stórmerkilegur áfangi í lífi hvers manns.
Jæja vonbrigði ársins eru þau að hafa ekki gengið út.....enn von, hehe
Hef þetta ekki lengra, þetta er bara svona toppurinn á ísjakanum, enda var 2003 feykigott ár. Ekki síst vegna allra vina minna, sem krydduðu stundir ársins svo um munar.
Vinum mínum nær og fjær óska ég góðrar stundar í kvöld, og vona að árið 2004 verði outstanding.
knús og kossar til ykkar allra :)