Fanney keepin´t cool

laugardagur, apríl 03, 2004

Innari hjá mér í gær, með tilheyrandi fagnaði. Ógisslega gaman í partýinu og ég verð að státa mig af því að ég á alveg hrikalega skemmtilega vini sem gerðu kvöldið fullkomið. Fórum á Hverfis, þar sem Beta plöggaði okkur inn með líkamstilburðum sínum..ehhe. Mikið dansað og drukkið á hverfis, en þegar að sömu lögin voru farin að koma í sömu röð og fyrr um kvöldið var mér allri lokið. Fórum á 22 þar sem leiðinlegasti Dj sögunnar var að spila...oj hann er alveg fífl, þvertók fyrir óskalög með því að láta einhvern slavneskan matsjó standa fyrir búrinu...jiii hva etta var halló. Svo hélt maður bara glaður í bragði heim á leið og át afganginn af veislunni.
Eiturhress dró ég Ásdísi á pítuna í morgun, þar sem majónes smurði líkamann á mér að innan fyrir vikuna...mmm, ó svo gott. Eitthvað er nú samt smurningin farin að þynnast þar sem ég er öll að þynnkast upp, svona í kvöldsárið. Fer sennilegast snemma í háttinn og tækla ritgerð á kantinum á morgun.

Mér var sagt í gær af ðe bloggkvín að ég væri með leiðinlegt blogg, humpff. Kannski vegna þess að ég blogga aldrei um sleik, eða sæta gaura...eða hvað? Lesið bara ðe bloggkvín ef ykkur langar í sleiksögur :D