Fanney keepin´t cool

mánudagur, janúar 03, 2005

Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Einhvern veginn hef ég gleymt að taka saman gamla árið og plana það nýja...en það kemur. Er bara ekki búin að ákveða hverju ég ætla að áorka á nýja árinu og þarf alveg að setjast niður og hugsa hvað ég gerði markvert á gamla árinu. En þetta kemur allt saman með kalda vatninu.

Mig langar að vara fólk við mjög svo ljótu prófi sem er að ganga á netinu. Þetta er mjög nærgöngult kynlífspróf, þar sem maður svarar spurningum um sjálfan sig. Síðan fær maður skilaboðin "fooled" og svörin sendast á þann aðila sem bjó prófið til. Það gæti verið óprúttinn aðili útí bæ eða bara einhver kunningi þinn. Hvað sem því líður, efa ég að þið viljið að einhver sjái þessi svör ykkar.

Yfir og út í bili