Fanney keepin´t cool

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Eins og glöggir lesendur hafa líklega tekið eftir er Fannsan að fara að skella sér til Búdapest via London eftir viku...það er, ef fleira fer ekki úrskeiðis. Lággjaldaflugfélög þessa heims hafa gert allt til þess að reyna að gera þess ferð ómögulega. Icelandexpress sem ætla að flytja okkur til London hófu leikinn með því að fella niður flugið okkar til London, buðust reyndar til að bóka okkur í flug seinna um daginn. Allt gott og blessað með það, nema að við hefðu soldið þurft að hlaupa í næsta flug, en alveg náð því. En þetta snilldar fyrirtæki þurfti að ganga skrefinu lengra og seinka alltíeinu fluginu um 40 min, sem þýddi það að við hefðum ekki náð fluginu til Búdapest. Fannsan gjörsamlega missti vitið og lét þá heyra það símleiðis...endaði símtalið á að segja "thanx for nothing"...langaði að segja bitch, en hætti við. Reiði mín var tilkomin vegna þess að þeir vildu ekki aðstoða okkur á nokkurn hátt við að ná tengifluginu, bóka hótel eða neitt. Viðskiptum mínum við þetta fyrirtæki er hér með lokið og hef ég verið að skeina mér á 30.000kr icelandexpress-gjafabréfinu sem ég fékk í jólagjöf frá decode. Jæja náði nú að róa mig og fór í það að bóka hótel í London, því við vorum alltíeinu föst þar í sólarhring. Jeij allt að ganga upp...jeijjeijj og ég að rifna úr spennu. Neiiii neiii Fanney var ekki lengi í paradís, nú hringdi skyeurope og tjáði mér að þeir hefðu bara sísvona fellt niður flugið til búddapest...WHAT! Eru þessu lággjaldaflugfélög að gera grín...hvernig má þetta vera?
Dagurinn í dag fór því í að reyna að fá nýtt flug símleiðis í gegnum asíska konu í Slóvakíu sem kunni ensku álíka vel og 8 ára barn með málhelti og greindarvísitölu á við meðalgreinda mús!
Allt blessaðist þetta að lokum og ég held að þetta sé að fara að reddast...ef ég skildi meðalgreindu músina rétt. Verðum reyndar strandaglópar á stansted yfir nótt, en vonandi er bara góður bar þar...Og mér skilst að skyeurope ætli að bæta okkur þau óþægindi með því að gefa okkur öllum ferð að eigin vali á einhvern af áfangastöðum þeirra...þetta kallar maður góða viðskiptahætti!!!
Þannig að við erum á leiðinni til Búdapest eftir viku, ef þessi félög halda sig á mottunni þangað til.

Þannig að hrós dagsins fær skyeurope, á meðan ég sendi icelandexpress óhrós í poka með prumpulykt...