Fanney keepin´t cool

föstudagur, janúar 07, 2005

Nýlega uppgötvaði ég lítið leyndarmál í hjarta borgarinnar...Krua Thai!
Þessi agnarsmái veitingarstaður við Tryggvagötu er með betri Thai-stöðum sem ég hef komið á...og hef ég nú komið á þá nokkra víðsvegar um hnöttinn. Góð þjónusta og frábær matur á góðu verði í huggulegu umhverfi er góð uppskrift af fínum lönns..jah eða dinner. Mæli ég sérstaklega með rétt númer 29 (fyrir þá sem þola pínu stekan mat), rautt karrý hlaðið af ýmsu góðgæti eins og ferskum strengjabaunum, paprikku, kjúlla og allskonar ferskum kryddjurtum...fullnæging bragðlaukanna.
Þið sem fílið tælenskan mat og eruð komin með ógeð á niðursoðnum, upphituðum Mekong mat drífið ykkur á Krua Thai...sjáið ekki eftir því.

P.s Þið sem kunnið að segja "halló" og "takk" á tælensku...ekki hika við að nota það, það skapar vingjarnlegt viðmót starfsfólksins að eilífu.