Fanney keepin´t cool

föstudagur, júlí 01, 2005

Jemundur minn eini hvað tónleikarnir í gær voru magnaðir. Orkan og krafturinn sem lak af Simon Le Bon var þvílíkur að hrollur fór um mig hvað eftir annað. Maðurinn hefur engu tapað og er ekkert lítið sexy. Held að ég hætti með John Taylor og byrji með Simon. Ætlaði sko alltaf að giftast John þegar ég yrði stór, og nú er ég stór og ætla að giftast Simon.
Það margborgaði sig að mæta klukkan 6 og ná plássi fremst...þvílík upplifun að vera svona framarlega(var sko alveg alveg alveg fremst), fékk svita og slef frá Simon yfir mig alla hvað eftir annað.
Jah bara magnaðir tónleikar í alla staði...fá 10+ í einkun frá mér.

P.s Einhver paparazzi hefur náð mynd af mér á tónleikunum.

P.p.s Hvet alla til að mæta á live-8 í kvöld!!