Hin fínasta verslunarmanna helgi í borg óttans að baki. Startaði helginni með grilli hjá brósa og frú. Raddböndin þanin og tequilla með ormi slammað. Auðvitað lenti ég í því að drekka orminn og hef verið sködduð andlega síðan. Dreymdi í nótt að það væru ormar að skríða uppúr hálsinum á mér og nokkrir komu útúr tungunni...jakkkk.
Laugardagurinn var notaður til hvílu og vidjógláps, kærkominn letidagur eftir erfiða viku.
Bauð svo til grillveislu á sunnudaginn þar sem Marie Antoinette, Cecile, Jean Luc, Claudette, Anne-Marie og Sigolene fóru á kostum í leik og drykk. Bærinn málaður rauður eins og svo oft áður og var dansað fram undir morgun. Góð helgi altso!
Núna er það bara vinna vinna vinna og svo eru ekki nema 6 dagar í að ég og Beta höldum til Cambridge til að vera viðstaddar brúðkaup þurýar og jussa. Jesús hvað ég hlakka til...jibbýkóla jibbýjeij.