Fanney keepin´t cool

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Gleðilegt ár!
Jæja þá er komið 2006, og held ég því fram að ár sem endi á sex hljóti að verða gott ár.
Árið sem leið var nú líka alveg ágætis ár, ekkert metár, en alveg ágætt.
Ég lagði land undir fót 3x á árinu...england, ungverjaland, usa. Stefni á að fara jafnoft ef ekki oftar til útlanda á nýju ári. Ég gekk laugarveginn(ekki búðarveginn silly folks) með fríðu föruneyti. Einstaklega skemmtileg ferð og mikill sigur fyrir FannZ. Svo stækkaði ég fjölskylduna þegar Gormur flutti inn í febrúar(á valentínusardaginn...how cute). Við Gormur erum mestu mátar og það væsir ekki um okkur í íbúðinni hans(hann heldur að hann eigi hana skuldlaust).
Ég verð að nefna 3 tónleika sem standa uppúr á árinu sem leið:
Duran Duran(og maður segir Djúran djúran ekki dúran dúran)...meistaralega vel heppnaðir tónleikar, þar sem ég var fremst og skemmti mér konunglega, enda Duran fan fram í fingurgóma.
FranZ Ferdinand. Eins gott að ég fór í lágbotnaskóm, því þetta er danspopp af bestu gerð. Mjög góðir tónleikar í góðra vina hópi.
Sigurrós. Tónlistar fullnæging ársins án nokkurs vafa. Þessir fara alveg inná top 5 yfir bestu tónleika ever hjá Fönnsunni. Fæ ennþá gæsabólur við tilhugsunina.
Svo má ekki gleyma því að Jack Bauer kyssti mig á árinu...rarrrrr.
Leiðinlegasti atburður ársins var innbrotið. Í sumar var brotist inn til mín og öllu steini léttara stolið. Ekki skemmtileg lífsreynsla það. Vona ég að sá hinn seki fá holdsveiki, fuglaflensu, ebólu, Aids og sárasótt samtímis.

Hlakka til að takast á við 2006 í góðum gír og góðra vina hópi.