Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Lukkan heldur áfram að vera mér hliðholl. Ég er farin að vinna í spilum, eitthvað sem hefur ekki mikið verið uppá teningnum undanfarið. Ég og Beta spilum oft snilldarleikinn 10.000 þegar við hittumst. Í 3 mánuði hefur Beta alltaf unnið mig og sagt að ég sé léleg og ég veit ekki hvað og hvað. Hún hefði átt að hlusta þegar ég sagði "ég er bara óheppin and soon I´m gonna get you sucka". Eins og við manninn mælt...þegar að lukkan ákvað að ganga í mitt lið hefur Beta ekki riðið feitum hesti. Ég rústa henni hvað eftir annað...aftur og aftur og aftur. Thank you miss luck!