Fanney keepin´t cool

föstudagur, desember 16, 2005

er búin að syngja þetta lag í allan dag, og blasta það í vinnunni öllum til ómældrar gleði...dásamlegt lag!
Afsakaðu allan þennan reyk inni,
ég var barað líta til með steikinni.
Hún er meir og mjúk - hún er eins og hugur manns.

Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
finn svo gjörla - þetter töfrastund.
Úti vindur og fjúk - kósíheit par exelans.

Smakka sósuna - því mér finnst hún í það þynnsta.
Hún þarf korter enn - í það allra minnsta.
Og við setjumst að borðum - ha-ha.Já við setjumst og borðum - ha-ha.

Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?Hvernig smakkast svo? -
Þetter yndislegt.Jahá, en mest er þó gaman - ha-haað við skulum vera saman - ha-ha.

Góða veislu má ei skorta eftirrétt.
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt.
Fáðér rúsínubrauð-nær algerlega fitusnauð.

Allir þurfa jú að passa línurnar.
Viljum ekki enda eins og svín - er það?
Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma.

Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman - ha-ha.Æ, hvað það var nú gaman - ha-ha.

Smökkum sörurnar, mömmukökurnar,makkarónurnar - eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo? Þetter dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-haað við skulum vera saman - ha-ha.

Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það upp urið?
Hvernig smakkast svo? Þetter æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-haað við skulum vera saman - ha-ha.

Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffíí æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? Þetter unaðslegt.
Jahá, en mest er þó gaman - ha-hahað við skulum vera saman - ha-hah.