Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, desember 08, 2005

Í tilefni komandi hátíðar og í ljósi þess að ég vinn á mjög alþjóðlegum vinnustað hefur verið prentaður út listi með hvernig á að segja "gleðileg jól" á flestum tungumálum veraldar. Þegar við ákváðum svo að gera okkur glaðan dag og fara á Krua Thai í hádeginu fannst okkur við hæfi að læra að segja gleðileg jól á tælensku. "Sawadee pee mai" stóð á blaðinu. Eftir að hafa hámað í okkur dýrindis mat ákváðum við samt að spurja kokkinn á krua til öryggis hvernig maður skildi segja "gleðileg jól" á tælensku:
kokka-konan: þa er bara eins og ensku...Melly Chlistmas....
Ég: ahh ok Merry christmas bara..
Kokka-konan: já bala melly chlistmas.
Ég: en hvað er þá Sawadee pee mai?
kokka-kona: það er greðilegt ál!!

Ég þakkaði pent fyrir upplýsingarnar og hljóp út til að míga ekki á mig úr hlátri.