ok note to self...aldrei að lofa uppí ermina á sér. Nú mun ég aldrei stunda kynlíf aftur afþví ég gleymdi að blogga alla síðustu viku. Kannski ég geti bætt þetta upp með góðri bloggviku núna. Málið er bara að ég lifi ekki nógu spennandi lífi til að blogga daglega. Vikulegur pistill er alveg nóg held ég. Eða bara blogga þegar maður er í stuði. Held að það sé besta lausnin á þessu máli.
Annars er það helst í fréttum að ég eignaðist flakkara á föstudaginn og eyddi helginni með honum. Mjög gott samband. Alveg skilyrðislaus ást af beggja hálfu. Hann fær kósí stað í hillu með öðrum tækjum og ég fæ taumlausa gleði frá honum í staðinn. Um helgina sýndi hann mér óskarsverðlaunamyndina Crash, nokkra þætti af Surface og nokkra þætti af Fóstbræðrum.
Þvílík snilld sem fóstbræður eru...hvers vegna er þetta ekki endursýnt eða gefið út á dvd. Albestu grínþættir sem hafa verið gerðir í íslensku sjónvarpi.
"Nýlega var OJ Simpson dæmdur til að greiða 600milljónir íslenskra króna í skaðabætur vegna réttarhalda yfir sér. En ég er að pæla afhverju íslenskar krónur, hvar fær OJ Simpson allar þessar íslensku krónur......"Bwahahah.
Já og lag dagsins er The world at large með Modest Mouse...það verður á repeat í dag.