ojbara og ullabjakk!
Ég hef óvart horft á 2 þætti með Köllunum á sirkús(þeir eru á undan ameríska idolinu). Ekkert að þessum köllum svo sem...við erum samt ekki á sömu blaðsíðu, sem er bara fínt. En ég get ekki orða bundist yfir þeim hroðbjóði sem hann Geir Ólafsson hefur að fram að færa í þáttunum. Einhvernveginn með því ósmekklegra sem ég hef séð í sjónvarpinu lengi. Hann er fenginn þarna til að kenna "treflum=lúðum" (skv köllunum) hvernig eigi að bera sig að í ástarmökum. ok. Hver vill sjá Geir(sem mér finnst álíka sjarmerandi og ofþroskaður banani) eðla sig við uppblásna dúkku eða sófapúða með tilheyrandi hljóðum og svipbrigðum? Ekki ég. Kynhvöt mín beið hnekki við þetta. Takk Geir!