GSLFF...eða guði sé lof fyrir föstudaga.
Keilukeppni deCODE í kvöld og gríðarleg spenna í húsinu. Mitt lið heitir motturnar og við verðum allar með hormottu. Geðveikt smart skvísur. Ég verð líka með viðbjóðslegar gervitennur af því ég er fyrirliðinn. Held að ég skíti aðeins á bjórbindindið mitt og fái mér einn kaldan í tilefni dagsins. Mín regla er að ég megi bara kaupa einn bjór. En ef einhver bíður mér uppá bjór má ég þiggja hann...góður díll. Efa samt að einhver bjóði mér í glas með þessar tennur.
Jáh og frétt vikunnar er að ég var að fá kettling. Ogguponsupínulítinn hnoðra sem heitir Gosi(í augnablikinu...get ekki ákveðið). Hann er grár með hvítt á bumbunni og hálsinum og kringum nebban, en svo er hann með svartan nebba. (mynd af gosa...þessi með svarta nefið)
Húsbóndinn á heimilinu(hann gormur) var nú ekki parhrifinn af þessum litla orkuhnoðra til að byrja með. Hann er samt hættur að hvæsa á hann og ég held að þeir verði bestu vinir.
Góða helgi lömbin mín!!