Fanney keepin´t cool

þriðjudagur, júlí 24, 2007

Jiiii var ég búin að segja ykkur að ég er að fara á ARCADE FIRE í London í nóvember. Ekkert lítið sem ég er spennt...geri alltaf aðeins í brækurnar þegar ég nefni þetta.
Annars er bara blússandi hamingja í herbúðum Fönnzunnar, sól í hjarta og gleði í haus...jah fyrir utan einhverja flensudruslu sem reynir að ræna mig stemningu. Hún hefur ekki haft erindi sem erfiði, því ég er vopnuð guðdómlegu amerísku flensulyfi sem gerir mér kleyft að sofa 19 tíma á sólarhring....og hvergi er meiri stemning en í draumaheimi Fönnzunnar.