Fanney keepin´t cool

laugardagur, apríl 10, 2004

Fannsan dregin út á lífið í gær, á sjálfan föstudaginn langa! Erla snillingur og ég fórum á ölstofuna og drukkum ótæpilegt magn áfengis, irish carbomb svo eitthvað sé nefnt. Heiðrún kom og hitti okkur á kantinum, og hélt hún áfram að pína vínið oní mig...isssissss. Við Erla hittum svo þá alleiðinlegustu konu í heimi í röðinni á bitabílnum....úffff.
Stelpa við strák: hvaðan kannast ég við þig....
Fanney(að vera fyndin): ööö kannski úr stæ 101.
Stelpa með vísifingur á lofti: heyrðu þú skalt nú bara átta þig á því að ég er greinilega komin miklu lengra en þú...ekki nóg með það að ég sé búin með stæ 101, þá er ég líka búin með viðskiptafræði í háskóla íslands...
Fanney: híhí..úúú. Já áttum okkur á því!
Stelpa sem snýr baki í mig: ooooo ég er að verða brjáluð og gaf svo mér og Erlu sitt hvora löngutöngina....
Þetta var alveg magnað, svo bað hún um auka kokteilsósu, svona til að róa sig af þessum óvænta pirring sem ég hef víst valdið í rigningunni við bitabílinn í nótt...Jah svona er páskaandinn á íslandi í dag, hvað hefði sjálfur JC sagt við þessu?
Svona fólk á bara að koma sér úr bænum og leggja sig, sofa þessi leiðindi bara úr sér...