Jeiiiijjjjj var að skila ritgerðardruslunni!! Þvílíkur léttir og gleði sem fylgir því að afhenda kennara nokkur blöð...mmm. Hann varð alveg himinlifandi, bjóst sennilega ekki við að Fannsan myndi skila í dag...hah, sá við honum. Stefnt er á að fá sér bjór eða tvo í kvöld svona rétt til að fagna þessu. Svo er bara að massa hina ritgerðina sem er einmitt um matarsýkingar af völdum fjölónæmra Salmonella stofna..íííhaaaa, ég er alveg snillingur í að velja efni..hehe. Svo bombar maður 2 fyrirlestrum af á mettíma og þá loks getur maður farið að snúa sér að prófunum...úfff. Jæja hafið það gott um páskana, gleðikona í háska. (segið gleðikona í háska hratt og þá er alveg eins og maður sé að segja gleðilega páska).
miðvikudagur, apríl 07, 2004
<< Home
