Árans ólukka...
Fannsan lenti í slysi í sinni eigin íbúð í dag. Málsatvik voru þannig að ég hafði kveikt á ilmkerti í gleri svona til að brenna upp almenna skítafýlu og sukk helgarinnar. Skyndilega heyri ég hvell, ég hrökk í kút og sá svo hvar ilmglasið var farið að leka. Hiti ilmlogans hafði sprengt glasið. Nú voru góð ráð dýr....ósjálfráð viðbrögð sögðu mér að grípa um glasið, sem ég gerði og fleygði því út. Var greinilega alveg búin að gleyma hversu heitt glasið var því ég hlaut skaðræðis bruna á löngutöng. Nú er svo í pottinn búið að ég á mjög vont með að skrifa á lykaborð, stafi eins og 'K' og 'i' sem einmitt eru í umsjá löngutangar eru kvölin ein að rita. Fyrsta slysið í Pétri...og ég er búin að kaupa það að flest slys gerast inná heimilum fólks.
Passið ykkur gott fólk, það leynast hættur í hverju horni.