Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Undarleg æska vor!!!!

Átti leið frá hjá MH í gær í þann mund sem hleypt var úr tíma. Jesús minn góður, skyndilega var eins og að ég væri stödd á grímuballi. Þvílík og önnur eins flippmenning sem virðist vera að tröllríða öllu þarna. Það var ekki ein manneskja í venjulegum fötum...en hvað eru svo sem venjuleg föt. En trúið mér, þetta var alveg over the line. Hver einn og einasti var svo flippaður að svanakjóllinn hennar Bjarkar hefði ekkert stungið í stúfa þarna.

Fór annars á ágætis mynd í gær, Broken flowers. Reyndar skeit hún alveg á sig í restina og var endirinn vægast sagt steiktur. En góð kvöldstund í góðum félagsskap, þannig að endirinn á myndinni er aukaatriði.

Annars er ég að missa mig í "24"....gjörsamlega húkked. Vonast til að klára seríuna í kvöld og þá get ég komið út og verið meðal fólks á ný.
Yfir og út í bili...