Föstudagur til...frussandi rigningar kominn í hús.
Rosalega er alltaf góð tilfinning að fara að sofa á fimmtudagskvöldi vitandi það að maður vaknar á föstudegi...og badabíbadabúmm bara komin helgi. Reyndar er komin helgi í Fönnsuna þegar hún labbar útúr kennslustofunni á fimmtudagskvöldum. Það tekur á að vera kennslukona í hlutastarfi, gaman en orkusjúgandi skratti.
Lúin smellti kennarinn sér svo í sófann með kaldan í einni og kött í hinni og sá einhvern þátt á skjá einum sem heitir "house". Hélt fyrst af nafninu að dæma að þetta væri eitthvað innlit/útlit drasl...en neinei þetta var gargandi snilld. Svona læknadót eitthvað og aðalleikarinn er snillingur, frábær týpa. Mæli eindregið með þessum þáttum.
Kennarinn heldur svo matarboð í kvöld, þar sem leyndardómar Indlands verða kannaðir...jibbýjeijogjó.
Bið ykkur vel að lifa og góða helgi lömbin mín.