Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, september 21, 2005

Ég er eitt stórt sólheimaglott núna. Fæ nýja rosalega fína bílinn minn á eftir. Verð krúsandi um götur bæjarins þar til sólin sest.
Veit samt ekki alveg hvað ég á að skíra hann...'gullið' er eina tillagan til þessa. Hann er sko silfur grár...en er ekkert silfur, ekkert númer tvö neitt...hann er Gullið.
En endilega komið með tillögur að nafni...og ef þið sjáið mig á harðaspani í kagganum, reynið bara að halda ívið mig og veifa á næstu ljósum :)