Fanney keepin´t cool

föstudagur, september 16, 2005

Jibbýjeiiogjollykóla.
Gríðarlega spennandi helgi framundan eftir tvær rólegar í röð.
DD-gellur ætla að hittast í kvöld og halda cockteila keppni og borða góðan mat. Mitt lið á eftir að rústa þessari keppni...ekki spurning. Get ekki uppljóstrað hernaðarleyndarmálinu núna, því keppinautar mínir eru eflaust að gúggla mig hægri vinstri núna til að komast að einhverju.
Á morgun fer ég svo í þrítugsafmæli...fyrsta af mörgum sem fara að detta inn. Gvuð minn andskotans góður..maður er farinn að nálgast fertugsaldurinn...sigin brjóst og grátt hár verða vandamál næsta áratugar. Kannski skárra en auraleysi og prófkvíði. Eða aurakvíði og prófleysi eins og undanfarið árið.
Góða helgi....dance in the rain,not in the drain...