Fanney keepin´t cool

mánudagur, mars 13, 2006

Ohh ég get verið svo mikill aulabárður stundum. Drullaði mér í sund eftir vinnu, sem hefur nú hingað til ekki þótt saga til næsta bæjar. Eftir temmilega vel heppnaðan 250m sprett, gufu og viðbjóðslegan perra í pottinum var komin tími til að fara uppúr enda tekið að rökkva. Svo eins og lög og reglur gera til um, fór ég í sturtu og þvoði mér vel og vandlega samkvæmt leiðbeiningunum sem hanga í sturtunni. Í þann mund sem ég stíg útúr sturtuklefanum og inná þar til gert þurrksvæði rek ég stóru tánna í einhvern fokkings þröskuld og hrasa alveg hrottlega. Á þessu sekúndubroti sá ég fallið fyrir mér, þarna skildi ég liggja hálsbrotin á evuklæðunum með stelpurnar veinandi úr hlátri...terrifying! Ósjálfrátt baða ég höndunum út og gríp í það næsta sem verður á vegi mínum. Það vill ekki betur til en svo að mér hefur tekist að læsa hrömmunum um mjaðmirnar á gamalli konu og smell með andlitið í rassgatið á henni. Konugreyið æpir á mig, hvurn andskotann ég sé að gera og tekur mig ekki alveg nógu trúanlega þegar ég segi henni að ég hafi verið að detta og hún hafi bjargað mér frá falli. Af tvennu illu held ég að það hefði verið skárra að smella í gólfið. Ég vona bara að hún hafi þvegið sér jafnvel og ég þennan daginn!