Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Það er víst kominn tími á blogg. Ég skulda dyggum lesendum(aðdáendum) ferðasöguna frá Danmörku. Verð að smella henni hérna inn áður en ég fer til Aþenu.
Ok Danmörk var snilld í alla staði. Reyndar hélt ég í upphafi að ferðafélagi minn væri með svefnsýki á háu stigi, þar sem hún svaf eins og steinn í öllum þeim farartækjum sem við stigum fæti inní. Hefði ég ekki haldið mér vakandi hefðum við stöllur endað í noregi á víkingamóti.
Strikið var tekið með trompi og kortið hitað að suðu. Fór svo á geðveikan indverskan stað og tjekkaði á stemmaranum á írskum pöbb. Stuð.
Fór svo til Helsingör daginn eftir þar sem ég smellti mér í vísindagallann og sat misáhugaverða fyrirlestra. Ráðstefnan var mjög vel heppnuð og má segja að ég og ferðafélaginn höfum tæklað hana vel. Eignuðumst fullt af vinum og náðum í góða "contacta". Svona hittingar snúast víst um það.
Ekki annað hægt þar sem boðið er uppá bjór í hádegismat...Daninn kann´etta.
Svo var gala-dinner á casino-i bæjarins, og var það í fyrsta skipti sem ég gerist svo fræg að horfa á heimskt fólk spila frá sér aleiguna. Ferðafélaginn skildi ekki alveg leikinn og spurði casinodömuna"why do you take the money people put on the table"...hélt bara að fólk væri að henda spilapeningum á borðið fyrir gelluna til að hirða. Jahérna.
En við gátum hlegið að þessu og mörgu öðru. Vorum eiginlega í hláturskasti alla helgina. Kom heim með cindy crawford maga dauðans.
Snilldarferð í alla staði og kann ég ferðafélaganum bestu þakkir fyrir góða ferð. Takk fyrir mig!