Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, mars 22, 2006

Sveitasæla...
Oh ég átti svo góðan dag í gær. Hætti mér útfyrir borgarmörkin og brunaði austur fyrir fjall. Fyrir ykkur sem skítið malbiki og skiljið ekki svona língó, þá er ég auðvitað að tala um hnakkabæinn Selfoss. Fékk sveitasæluna beint í æð, mokaði flór, sópaði flór, klappaði hest, greiddi hest, fór á hestbak (prufaði alveg 4 gangtegundir) og fór í nóatún(dántán selfoss). Undi mér ekkert smá vel á hestbaki, gæti alveg hugsað mér að verða hestanörd. Hestanörd í þeirri merkingu að vera ógisslega klár á hestbaki. Ekki svona hestanörd eins og ég er í dag, sem spyr heimskulegra spurninga varðandi hesta. Mér brá t.d heldur betur í brún þegar hestanördinn(veit ógeð mikið um hesta...er með hestablöð á náttborðinu)Kolla, hleypti öllum hestunum útúr hesthúsinu inná á eitthvað hestasvæði. Ég sá fyrir mér 3klst vinnu við að ná þeim aftur inn...enda hlaupa hestar hratt. Neinei hún bara kallaði á þá "kobbakobbakobba" og þeir komu strax og fóru á sinn stað inni í húsinu...merkilegt.
Tókum svo smá rúnt um Selfoss...eða útí nóatún og tilbaka. Ég sá engan með strípur,engan í böffalóskóm og engan á subaru impreza með heimagerðum spojler. Ég sá bara fullt af venjulegu fólki...merkilegt.
Héðan í frá geri ég aldrei aftur grín að Selfossi eða Selfyssingum(nema Kollu ofcors)...þetta er vinalegur bær(bílíf mí, það er risa bær bakvið kentökkí) með vinalegu fólki. Áfram Selfoss!