Ég hef víst verið klukkuð oftar en einu sinni og oftar en 2svar núna með stuttu millibili, þannig að ég verð sennilega að koma með eitthvað bull.
1. Ég er mikill dýravinur, reyni frekar að frelsa flugur og köngulær heldur en að drepa þær. Er líka mikill ánamaðka bjargari...soldið skrýtið kannski miðað við það sem ég starfa dagsdaglega.
2. Ég á fína íbúð, nýjan bíl og kisu...en ekki kall og ekki barn...merkilegt!
3. Mér líður best í góðra vina hópi, og er svo heppin að eiga bestu vini í heimi.
4. Ég drekk ekki mjólk...nema undanrennu stundum og þá verð ég að opna hana og fyrsta glasið er það eina sem er drykkjarhæft, hins vegar er fyrsta ostsneiðin af oststykki vond.
5. Ég er kennslukona í hlutastarfi og fæ kjánahroll þegar ég stend sjálfa mig að því að segja sömu brandarana og mínir kennarar hafa sagt gegnum árin!!
Vá þetta tók sinn tíma...aldrei skal ég gera svona 100 atriða lista, nema þá kannski að atriði 2 verði varanleg staða.
p.s Ég klukka Ásdísi, Betu, Valla, Erlu T og Línu!