Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Ég lét setja vetrardekkin undir elskulega bílinn minn í gær, sem er nú ekki í frásögur færandi ef ekki hefði verið fyrir dramatíska morguninn sem fylgdi í kjölfarið. Ok. Þegar ég kem út í morgun finnst mér bíllinn halla aðeins undir flatt...en vá ég var þreytt. Jæja svo keyri ég af stað og finn það fljótlega að dekkið er sprungið...andskotans helvíti hugsa og ég stekk útúr bílnum. Dekkið var ekkert bara sprungið, heldur alveg affelgað. Þannig að morgunninn fór í að tjakka upp, skrúfa og smella nýju dekki á. Það sem þessir dekkjaverkstæðakallar fá að heyra það á eftir, biðjið fyrir ykkur helvítin ykkar!!