Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, september 28, 2005

Módelklúbburinn "strike a pose" hittist hjá mér í kvöld til að fylgjast með stöllum okkar vestanhafs plumma sig í módelkeppni. Þetta eru án efa bestu kvöld vikunnar. Við módelsystur sitjum í krumpugöllum (matin bleu...þessir með slaufunni á barminum), sportsokkum,háum hælum með bleikan varó og veinum og skríkjum þegar "tyra-mail" kemur í hús eða aflitaði homminn kemur í heimsókn. Hver ætli verði rekin í kvöld? Ég veðja á ljótu stelpuna sem var með appelsínugult hár en er núna sköllótt...Þol´ana ekki!