Fanney keepin´t cool

föstudagur, nóvember 25, 2005

Hvað er að mér?Blogga einhverja voða óstuðsmánudagsfærslu og svo bara ekkert í marga daga. Þið hafið eflaust haldið að ég hafi brugðið mér yfir móðuna miklu.Nei ég hef ekki verið á Selfossi.Ég er hef bara verið svo gasalega upptekin.

Ég á ekki orð yfir lágmenningunni sem var í sjónvarpinu í gær...Herra Ísland! Þetta var vont í alla staði. Sviðsmyndin var ömurleg, kynnarnir voru skelfilegir og herrarnir sem áttu að bera þessa keppni uppi voru vægast sagt lélegir...og þetta klúður með grey strákinn sem var aldrei með á skjánum og fékk lásí afsökunarbeiðni og ekkert meir. Glatað! Þessi keppni fær enga stjörnu af 10 mögulegum.

Síðast en ekki síst. Þá er Betan mín kona dagsins. Hún var að bjóða mér á Sigurrósar tónleikana á sunnudaginn. Kokteilboð á undan og alles...jii hvað ég er spennt. Beta éska þig!