monday monday monday. Það er alltaf mánudagur. Mánudagar eru ekkert sérstaklega skemmtilegir dagar, ég nenni einfaldlega ekki að vinna á mánudögum. Óska þess alltaf að það gæti verið helgi einn dag til viðbótar...en það væri ekkert betra, þá væru bara þriðjudagar leiðinlegir. Reyndar eru þriðjudagar ekkert spes dagar, ekkert í sjónvarpinu og einhver lognmolla hvílir enn á manni frá helginni. Mín vika byrjar að kikka inn á miðvikudegi, þá fer að færast fjör í leikinn. Á miðvikudegi má maður spurja "hey hvað á að gera um helgina" og þá er sjónvarpið í essinu sínu. Þá er alltíeinu kominn fimmtudagur og vinnuvikan alveg að syngja sitt síðasta. Svo bara kabúmmmm föstudagur kominn með bros á vör og allir í gír og voða hressir. Helgin blasir við manni...eintóm sæla. Svo áður en maður veit af er aftur komin mánudagur.
mánudagur, nóvember 14, 2005
<< Home
