Þvílík gargandi snilld sem Sigur Rósar tónleikarnir voru. Ég held að ég hafi aldrei upplifað annað eins. Hljóð og sviðsmynd passaði eins og flís við rass og fékk mann til að falla í trans með hökuna niðrá bringu og gæsahúð um allan kroppinn. Lagavalið var einnig frábært og þótti mér einstaklega gaman að heyra lög af ágætis byrjun. Þeir léku eitt lag sem ég hef aldrei heyrt áður og geri ráð fyrir að sé nýtt. Þvílíka uppbyggingu og sprengikraft hef ég ekki áður upplifað. Þegar tónleikunum lauk stóð ég agndofa og klappaði fyrir þeim ásamt hinum 4999 sem deildu þessri upplifun með mér. Ég held að ég mæli fyrir munn flestra þarna inni þegar ég segi að klappið hefði með góðu móti getað staðið í alla nótt.
Takk kærlega fyrir mig Sigur Rós!!
Takk kærlega fyrir mig Sigur Rós!!
