Kettir eru klókir.
Einhvern veginnn hélt ég þar sem ég er homo sapiens og kettirnir mínir aðeins óæðra spendýr að ég mundi stjórna heimilishaldinu hérna í Víðihlíðinni. O boy, o boy þar skjátlaðist mér. Þessi litlu kvikindi stjórna með harðri hendi. Ég stekk upp úr sófanum í þynnku og kaupi handa þeim mat þegar þeir eru svangir, ég þríf undan þeim skítinn og skeini ef þeir ná ekki að klippa. Ég býð þeim góða nótt og góðan dag og brosi útí annað þegar þeir hunsa mig. Ég hefði haldið að ég væri alveg á top 5 listanum þeirra. Neinei mér verður aðeins á í messunni og þeir launa mér með því að míga í sængina mína. Klósettið þeirra er álíka stórt og mitt, svo hafa þeir garðinn að auki. Samt kjósa þessir ferfætlingar að míga í sængina mína. smart.
Þetta er alveg svona "no win situation", því ég get ekki hefnt mín. Það er rosa freistandi að gefa þeim bara gúrku að borða, eða klæða þá í dúkkuföt. En þá er ég ansi hrædd um að finna pissupolla hér og þar um íbúðina.
Ég vona bara að þeir skammist sín...