Smá öppdeit frá Aþenu...
Höfum ekki hitt Silvíu Nótt ennþá, en hún er alveg að tröllríða Aþenu. Sáum hana í fréttunum og alles, en skildum ekki bofs.Komust svo loksins á netið fyrst núna og gátum horft á íslenskar fréttir. Grikkir eru soldið slow, hérna gerist allt frekar hægt. Fólk borðar lunch um 4-5 og kvöldmat um svona 12-01.Leigubílstjórar eru stressuðustu menn í heimi og reykja svona 5 sígarettur á 10 min akstri. Þeir blóta eins og sjóarar, lemja í stýrið og keyra eins og það sé enginn morgundagur. Í hvert skipti sem maður stígur uppí leigubíl, er maður hreinlega ekki viss um að maður komist lifandi á áfangastað. Við erum búnar að læra á trammann og ætlum að nota hann sem mest héðan af.
Jáh og svo eru Grikkir dónalegasta fólk í heimi. Já ég ætla bara að alhæfa það hér og nú. Kannski eru þetta einhverjir tungumála erfiðleikar...en ég held að þetta sé bara hreinn og beinn dónaskapur. Þeir hnussa á mann ef maður biður um eitthvað og setja upp svona
"hvaðífokkinuviltu" svip. Hér brosir fólk ekki og virðir almennt ekki þær "kurteisis" reglur sem tíðkast hjá siðmenntuðu fólki.
Hótelið var ekki alveg eins og við bjuggumst við...en þetta virkar. Við munum ekki eyða eins miklum tíma hér og við bjuggumst við. Miðbær Aþenu er miklu meira heillandi en miðbær Glyfada(þar sem við erum..svona eins og Kópavogur vs Reykjavík).
Tókum smá bæjarrölt í gær og snæddum hádegisverð með Akrópólis í bakgrunni...heillandi. Fórum svo á flottasta veitingarstað Grikklands í gær og eyddum aleigunni í mat og drykk. Fengum 8 rétti og mismunandi vín með hverjum þeirra(einn þeirra var nautabláæð sem var eitthvað það besta sem ég hef fengið). Fimm þjónar sáu um að gera kvöldið ógleymanlegt og svifum við út á rósrauðu fullnægingar skýi eftir fullkomnustu matarupplifun ever. Ég fæ ennþá vatn í munninn.
Drukkum svo bjór með grískum vini okkar(Lazarus) við rætur Akrópólis og skriðum heim til Glyfada(sem var alveg orðin Selfoss þá,eftir að hafa verið við rætur akrópólis og öll þessi hof) um 3 leytið í nótt. Dagurinn í dag fer í tröppugang upp á Akrópólis...verðum að brenna þessum mat síðan í gær.
Læt vita af mér von bráðar, þar sem netið er komið í lag á hóteli dauðans.
Knús og kossar Fannókoppólólis
P.s ekki eru allir grískir karlmenn guðir og við komum án vafa hreinar meyjar heim.