Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, maí 18, 2006

Stóri Dagurinn er runninn upp....
...Jæja þá er júróvisjón í kvöld, held að ég sé um það bil að fara að pissa í mig af spenningi.
Gærkvöldið var svooo skemmtilegt, fórum á eurocafé sem er júróvisjón hommabar. Þarna vorum við 3 og svo svona 200 drop dead gördjösssss hommar sem allir kunnu ÖLL júróvisjón lög frá upphafi. Sama hvort þau eru íslensk eða albönsk, þeir kunna alla textanna. Síðan var þarna gaur frá júrónetsjónvarpinu og var að spila júrólög. Hann smellti mæk í hendurnar á okkur og lét okkur syngja Silvíu, Sókrates og Nínu fyrir sjónvarpið...úffff. Ég er ein sú falskasta í bransanum og Alex er ekki mikið skárri, þannig að þetta verður skrautleg útkoma. Getið kíkt á þetta hér há næstu dögum.
Svo eignuðumst við nýja hommavini. Mines og Palos frá grikklandi. Mestu kjútípæ í heimi. Mines lítur út eins og mótorhjólaútkastari en er ljúfur sem lamb og Panos er bara mesta krútt ever...vinnur með vangefnum börnum og er í grínpís og eitthvað þannig..bjargar dýrum alla daga...krútt. Svo komu nossararnir sem voru bestu vinir okkar kvöldinu áður. Þeir knúsuðu okkur og kysstu eins og við værum aldagamlar vinkonur þeirra. Svo dönsuðum við af okkur rassgatið í nautarfullum dans með 5 homma í kringum okkur...ó svo gaman.
Það er eitthvað svo auðvelt að kynnast mönnum af hinu kyninu þegar þeir spila fyrir hitt liðið. Enginn að reyna að vera annar en hann er og allir svo eased eitthvað. Bara bjútífúl friendship.
Eigum deit við nossarana 3 á keppninni og svo grikkina eftir keppnina. Nossararnir eru svo fyndnir..þeir hata norska lagið og klæðast allir Carolu bolum, ætla sko að halda með henni í kvöld. As if að ég mundi sveifla öðrum fána en þeim íslenska á stundu sem þessari..þjóðernisrembingurinn er of mikill.
Gríski vinur okkar Lazarus sem er ástfanginn af okkur öllum skilur ekki að hann geti ekki átt okkur allar sem kærustur. Hann reynir að leiða okkur allar og segir til skiptist við hverja og eina hvað hún er sæt. Okkur íslensku breddunum finnst þetta ógeð vemmulegt og glatað. Svo er hann ekki einu sinni Grikki, hann er Albani...til hvers að eignast grískan vin sem er svo ekkert grískur...piffft. Hann var fljótur að flýja þegar við drógum hann á hommakaffihúsið, enda of mikið testósterón í þessum manni. "I don´t dislike gay men, I just can´t talk to them". Fine by us, við fílum hommana miklu betur en einhverja miðjarðarhafs testósterónbolta sem vilja leiða mann...ojbara.
Jæja ætla að fara að ná ogguponsu sól á kroppinn svo ég komi nú með smá lit heim. Get ekki komið heim frá sunny Greece jafn undanrennuhvít og ég var áður en ég fór út.
Svo þarf maður náttlega að gera sig massa sætan fyrir kvöldið...gvuð hvað þetta verður gaman...verðum allar í silvíu-bol og með 20 íslenska fána...nei bara 19 ég gaf einn í gær til gaurs sem kunni Silvíu textann betur en við.
Ég treysti ykkur til að sitja límd við skjáinn og reyna að spotta 3 bleikar (sólin sjáiði til) gellur í silvíubolum með íslenska fána (sem eru jafnlitlir og póstkort) tapandi sér úr gleði.
Skemmtið ykkur vel í kvöld...ég er fullviss um að hún Silvía mín verði landi og þjóð til sóma.
Hugs and kisses
Fanney Hoppókloppólus.